Landvernd harmar árásir á umhverfisráðherra

Yfirlýsing frá Landvernd vegna áforma um byggingu álvers í Helguvík

Stjórn Landverndar harmar linnulausar árásir fylgjenda byggingar álvers í Helguvík á umhverfisráðherra landsins undanfarið og skorar á hlutaðeigandi aðila að útskýra fyrir þjóðinni hvernig það þjóni hagsmunum Íslendinga að verja nær allri orku sem hugsanlega eftir stendur á Suður- og Suðvesturlandi til einnar verksmiðju í þungaiðnaði. Samtökin beina þessari fyrirspurn til þeirra aðila vinnumarkaðarins sem hafa haft sig í frammi, til Norðuráls, til HS Orku, til Orkuveitu Reykjavíkur, og til viðkomandi sveitarfélaga og alþingismanna. Þá hvetja samtökin landsmenn alla til að hlusta á unga fólkið sem á að erfa landið og til að gera boðskap nýafstaðins Umhverfisþings um sjálfbært Ísland að sínum. Áform um álver í Helguvík gera ráð fyrir einu stærsta álveri í Evrópu með 360.000 tonna framleiðslugetu og gífurlegri orkuþörf eða allt að 630 MW. Til samanburðar var framleiðslugeta álvers Ísal í Straumsvík 33.000 tonn þegar það tók til starfa árið 1969 og er því fyrirhugað álver í Helguvík um 11 sinnum stærra. Landvernd bendir á að ekki hefur verið sýnt fram á hvernig á að afla nægilegrar orku til svo stórs álvers, hvað þá hvernig flytja á orkuna frá stórum fjölda orkuvinnslusvæða til Helguvíkur án þess að valda verulegu eignatjóni á friðuðum svæðum og spilla ásýnd Reykjanesskagans með tröllvöxnum háspennulínum. Minnt er á að sum þeirra orkuvinnslusvæða sem horft er til hafa verndargildi á heimsvísu. Landvernd minnir enn og aftur á að hagvöxtur og náttúruvernd eru ekki andstæður heldur, þvert á móti, er umhverfis- og náttúruvernd forsenda efnahagslegar og samfélagslegar velmegunar til lengri tíma litið. Hægt er að byggja upp blómlegt atvinnulíf á Íslandi án þess að valda alvarlegum spjöllum á náttúru landsins. Nýting orkuauðlinda þarf ekki að fela í sér stórkostleg náttúruspjöll. Vanda þarf til verka, bæði hvað varðar val á verkefnum sem og stjórnsýslu og átta sig á heildaráhrifum áður en lagt er af stað. Einnig þarf að kunna sér hóf. Í stað þess að ráðast í 360.000 tonna álver í Helguvík er mun vænlegra fyrir íslenskt samfélag og efnahag að takmarka stærð væntanlegs álvers við það sem orkulindir og náttúra landsins geta borið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Úrskurður Ráðherra er um skipulagsmál. Löngu er búið að ákveða að reisa þetta álver. Búið er að skrifa undir allskyns samninga og Ríkisstjórnin hefur lagt blessun sína yfir framkvæmdina. Ríkisstórnin hefur þess utan skrifað undir stöðugleika sáttmála þar sem hún lofar sérstaklega að ryðja hindrunum fyrri framkvæmdinni úr vegi. Þessvegna eru þessi mótmæli hávær. Hún er að tefja framkvæmdir og draga til baka ákvarðanir og loforð. Ekki má rugla þessu við ákvarðanatöku um hvort reisa eigi álver eða ekki.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 12.10.2009 kl. 17:59

2 Smámynd: Pétur Þorleifsson

Byggingarleyfi fyrir verksmiðjuna var veitt áður en aðrir mikilvægir hlutir lágu fyrir.

Pétur Þorleifsson , 20.10.2009 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband