Dr. Robert Costanza heldur opinn fyrirlestur í Háskóla Íslands miðvikudaginn 26. ágúst nk. kl. 16.00-18.00, í Öskju sal 132. Yfirskrift fundarins er:
Using the global recession as an opportunity to create a sustainable and desirable future
Dr. Robert Costanza er prófessor í visthagfræði (ecological economics) og forstjóri Gund Institute for Ecological Economics við Vermontháskóla. Dr. Costanza er einn af þekktustu fræðimönnum samtímans innan umhverfisfræðinnar einkum fyrir mat sitt á þeim fjárhagslegu verðmætum sem felast í þjónustu vistkerfa (ecosystem services).
Dr. Costanza mun í fyrirlestri sínum fjalla um mikilvægi þess að móta nýja sýn um sjálfbæra framtíð þar sem tekið er tillit til náttúruauðs og félagslegra þarfa jafnt sem áframhaldandi hagsældar. Dr. Costanza mun sérstaklega beina sjónum að þeim tækifærum sem hafa opnast í kjölfar efnahagsumróta síðasta árs.
Finna má frekari upplýsingar um Dr. Robert Costanza og Gund stofnunina á vefsíðunni www.uvm.edu/giee/
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna,
þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.
Landvernd
stendur vörð um íslenska náttúru og er virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir, náttúru og umhverfi.
Allir geta gerst félagar í Landvernd með því að skrá sig hér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.